Taboo hlaðvarp

Taboo er hlaðvarp þar sem við, Árni og Guðrún, köfum djúpt í málefni sem oft eru sögð ”ekki við hæfi” - eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd, OnlyFans o.fl. Í hverjum þætti opnum við á einlægar samræður þar sem við deilum okkar eigin reynslu og spyrjum hvort annað að spurningum sem fáir þora að spyrja og ögrum þar af leiðandi ríkjandi hugmyndum. Við erum hjón sem höfum verið saman í 15 ár og þar af gift í 10 ár og höfum eflaust gengið í gegnum flest allt sem hægt er að ganga í gegnum í hjónabandi. Við elskum andleg málefni og setjum heilsuna okkar í fyrsta sætið. Við erum foreldrar þriggja dásamlegra barna og elskum að lifa lífinu. Það er okkar markmið að tala um ögrandi og stundum erfið málefni út frá okkar reynslu. Það er allt stutt í húmorinn hjá okkur og við tökum okkur ekki of alvarlega. Mottó-ið okkar er ”lífið er of stutt til að vera venjuleg”. Ef þér finnst gaman að kafa undir yfirborðið og vilt hlusta á raunveruleg samtöl um það sem við öll hugsum en fáir segja upphátt - þá er Taboo fyrir þig. Athugið að þættirnir eru ekki ætlaðir yngri en 18 ára.

Listen on:

  • Apple Podcasts
  • Podbean App
  • Spotify

Episodes

7 days ago

Velkomin aftur!
Í þessum þætti fáum við í fyrsta skipti gesti til okkar! Mikil tímamót fyrir Taboo :)
Við spjöllum við parið Köru og Viktor sem ganga undir nafninu Lovetwisted bæði á SDC, onlyfans og fleiri vettvöngum á netinu. Þau eru virk í lífsstílnum, eru í opnu sambandi og hafa haldið stærstu swing party á Íslandi. Ótrúlega gaman að fá þau í spjall til okkar.
Njótið vel.

Thursday May 21, 2026

Hæ og velkomin aftur!
Í þessum þætti ræðum við aðeins um hvernig það er að taka skrefið og byrja að explore-a hluti saman sem par, hvort sem það er swing, opin sambönd etc.
Þetta getur verið erfitt og tricky og við förum aðeins yfir okkar sögu og okkar lærdóm af þessu.
 
Njótið vel

Monday May 11, 2026

Hæ þið! 
Í þessum þætti ræðum við um taboo hliðina af Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum. Snapchat er ákveðið fyrirbæri útaf fyrir sig sem okkur fannst mjög gaman að ræða um. Ef þið viljið fylgja okkur á snapchat þá finnið þið okkur undir @taboo.parid
Njótið vel

Friday Apr 24, 2026

Hæ hó og velkomin aftur
 
Í þættinum í dag spjöllum við um viðurkenningar og þá aðallega þörfin á að fá viðurkenningu frá öðrum. Hvaðan það kemur og hvernig það snertir við okkur.
 
Njótið vel.

Friday Apr 17, 2026

Hæ elsku bestu! 
 
Við erum mætt eftir smá frí og verðum vikulega næstu vikurnar. Mikið af spenanndi þáttum framundan í þáttaröð 2. Við ætlum að kafa dýpra í ákveðin málefni eins og opin sambönd og swing sem dæmi en í þættinum í dag ræðum við um $ex Workers. Ótrúlega áhugavert viðfangsefni að okkar mati. 
 
Njótið vel.

Þáttur 24. - Að hössla

Wednesday Mar 04, 2026

Wednesday Mar 04, 2026

Fyndinn þáttur þar sem við spjöllum um hvað það getur verið skrýtið og steikt að reyna hössla annað fólk þegar maður er í opnu sambandi. Stutt og laggott en skemmtilegt. Erum ennþá að prufa okkur áfram með nýjar græjur, vonandi eru hljóðgæðin í lagi :)
 
 

Monday Feb 16, 2026

Hæ og verið velkomin aftur :)
 
Í þessum þætti ræðum við um það sem kallast "power play" eða "power exchange" sem er eitt form af "kink" og er oft sett undir eitt af þeim kinkum sem eru undir BDSM. Förum aðeins yfir okkar reynslu og hvernig við erum að fikra okkur áfram. Okkur finnst þetta ótrúlega spennandi og hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst! 

Friday Jan 23, 2026

Hæ hó elsku hlustendur!
 
Í þætti 22 köfum við í smá pælingar í tengslum við virðingu í samskiptum og hvernig okkar samskipti og hlutverk hafa breyst innan sambandsins í gegnum árin.
 
Njótið vel. 

Wednesday Jan 14, 2026

Jæja þá erum við komin aftur eftir stutta pásu yfir hátíðirnar. Við mætum tvíefld aftur til leiks.
 
Í þessum þætti ræðum við um misræmi um langanir í samböndum og hvernig við höfum tæklað það hjá okkur.
 
Njótið vel :)

Þáttur 20. - anal kynlíf

Wednesday Nov 19, 2025

Wednesday Nov 19, 2025

Hæ og verið velkomin í Taboo!
 
Í þættinum í dag förum við aðeins yfir það hvað er lifandi hjá okkur þessa stundina. Helst er það nýja meðferðarrýmið okkar, Kjarninn, þar sem við munum bjóða upp á nudd, markþjálfun ofl ofl. Ásamt því tölum við aðeins um Onlyfans síðuna okkar og hvernig það gengur en þið getið fundið okkur þar undir @icelandiccouple. Svo köfum við djúpt, mjög djúpt inn í anal kynlíf og okkar reynslu.
 
Njótið vel :)

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125